Hvað er GottKort?
GottKort er nýtt greiðslukort sem er öðruvísi en áður hefur sést hérlendis. Kortið er hægt að fá sem kreditkort eða plús/fyrirframgreitt kort en í báðum tilvikum er um að ræða greiðslukort sem gefur þér afslætti eða fríðindi sem ekki hafa sést áður tengt greiðslukorti.
Í grunninn er kortið alþjóðlegt MasterCard greiðslukort gefið út af Kreditkorti hf. og sem slíkt gildir það um allann heim. Þeir sem nota kortið hjá samstarfsaðilum GottKort geta nýtt sér þá afslætti sem eru í boði hverju sinni og þannig sparað tugi eða hundruðir þúsunda á hverju ári.
Plúskort er fyrirframgreitt kort sem nýtist vel til dæmis þegar verslað er á Netinu. Engin færslugjöld eru greidd af Plúskortinu og því hægt að spara töluverða upphæð með því auk þess sem hægt er að njóta afsláttarkjara kortsins. Það er auðvelt að leggja inn á Plúskortið í gegnum heimabanka.
Ársgjaldið af GottKort er haft í lágmarki en það er kr. 7.500,- en U-23 kortin kosta kr. 5.000,-. Sama verð er greitt fyrir kreditkortið og greitt er fyrir plúskortið. Engin færslugjöld þarf að greiða með notkun plúskortsins. Kreditkort hf. fer með umsýslu og ráðgjöf vegna GottKort en GottKort ehf. sér um markaðsstarf og sölu.
Smelltu hér til að sækja um kortið.
